25. nóvember 2007 klukkan 18:27
Vigdis Bjork Sveinsdottir
05. september 2007 klukkan 21:22
Jæja, komið þið sæl!
Nei ég er ekki hætt að blogga
Er komin heim eins og flestir vita og hef bara haft svooo mikið að gera að bloggið hefur setið á hakanum!
Ætla að byrja á því að segja að ég fór í nokkra daga til Svíþjóðar að heimsækja Tatti, en það var rosa gaman, tókum þarna gott djamm en slökuðum annars bara vel á. Já og vel á minnst þá fór ég í tveggja tíma heilnudd! Shit hvað það var gott
Svo á leiðinni heim stoppaði ég í Stokkhólmi, hitti Sæunni þar og við fórum út að borða. Síðan tókum við lestina heim til hennar í bæ sem er þarna rétt fyrir utan borgina. En þar eru Sæunn, Andrés og hundurinn Sigurrós búin að koma sér svaka vel fyrir, þvílíkt sætt heima hjá þeim. Það þufti nú aðeins að fara rólega þegar kom að því að kynna mér fyrir hundinum hehehe en eins og allir vita að þá er ég dálítið hrædd við hunda
En þetta gekk nú allt saman vel og ég gisti eina nótt hjá þeim og fór síðan heim daginn eftir. Frábært að sjá Tatti og Sæunni eftir svona langan tíma.
Svo kom mamma í heimsókn og við gistum í Malmö eina nótt. Þar var verslað mikið og notið góða veðursins!
Alltaf gaman að eiga smá tíma með múttu, enda höfum við ekki verið tvær einar í of mörg ár hehe..
En svo kom fljótt að kveðjustund.. fór út að borða með Eyþóri, Louise og Caroline kvöldið áður en ég fór heim. Fórum reyndar á geðveikan strandarstað
borðuðum góðann mat og spjölluðum. Þetta var frábær endir á þessu ferðalagi mínu sem var ótrúlega skemmtilegt og reynslumikið.
Mæli með því að allir prófi þetta!!!
En nú er ég komin heim
og þá byrjar sagan upp á nýtt. Leita sér að vinnu, skrá sig í skóla, flytja, og kaupa sér bíl. Sumt er búið og sumt er eftir.
Ég er byrjuð að vinna á Nýju Bílahöllinni sem sölumaður en er einnig í pappírsmálum og þess háttar. Ég bý á 5 stjörnu hóteli í Kópavoginum þar sem ég fæ frítt að borða. Er einnig í Háskólanum að læra stærðfræði og var að byrja á Dale Carnige námskeiði.
Þess á milli hitti ég ALLA skemmtilegu vini mína sem ég er sko þvílíkt búin að sakna og er með fjölskyldunni
Hver gæti hugsað sér betra líf???
Loksins kann ég að meta Ísland og allt hér, vá þetta er bara frábært, komin aftur í harkið... ég á greinilega bara heima í stressinu og vitleysunni hérna! Fer mér bara ágætlega held ég enda hef ég sko alveg nóg að gera með allt sem ég er búin að koma mér í hehe.
En ég á víst bara eftir að finna rétta bílinn 
Ef þú veist um bíl sem hentar mér láttu mig þá vita! Topplúga er skilyrði
Sjáumst fljótt aftur
Viggitz
Vigdis Bjork Sveinsdottir
30. júlí 2007 klukkan 21:22
Jæja, ég er hér í mjög góðu skapi... engar áhyggjur hehe. 
Maggi var í heimsókn hjá mér um helgina og það var sko heví gaman að sjá hann! Fórum nú á feitt djamm eftir vinnu hjá mér á föstudagskvöldið. En þetta var síðasta vaktin mín! Mín bara komin í sumarfrí og þurfti að sjálfsögðu að fagna ógurlega...
Taka skal fram að ég fór á djammið með 5 hommum hehe, þetta var bara snilld, mikið dansað og mikið fjör.... Eeeeeeen daginn eftir ákváðum við að skreppa eitthvað út fyrir danmörku, hehe pökkuðum einhverju dóti niður og fórum upp á lestarstöð
Vissum náttúrulega ekkert hvert við vorum að fara þannig að við kíktum bara á skjáinn og sáum að Hamburg var næst á listanum!!! Keyptum bara miðana og stukkum svo upp í næstu lest, vá við vorum sko með hjartað í buxunum hehe, Maggi spurði mig hvort eittthvað væri að gerast í Hamburg hehe og ég bara uuuuuuu jájá örugglega hahahah. Svo byrjaði ferðalagið, vissum nú ekki alveg hversu langt þetta var... fórum í lest í tvo tíma svo fór lestin inn í skip og við vorum í skipinu í hálftíma yfir til Þýskalands og svo vorum við áfram í lestinni í 2 tíma hehe, vissuð þið að lestar gætu farið inn í skip???? Ekki vissi ég það, vissi bara ekkert hvað var í gangi þarna
. Komum á Lestarstöðina í Hamburg og vissum ekkert í hvorn fótinn við áttum að stíga. En við náðum svo að redda okkur hótelherbergi rétt hjá, hentum dótinu okkar inn og fórum út að borða 
Eftir þetta tók við þvílíkt djamm í miðbænum sem var SVAKALEGUR! Strippbúllur, casino og barir sko ÚT UM ALLT....
þetta var eitt stærsta djamm pleis sem ég hef séð og frekar subbulegt á köflum!! En við fundum á endanum einn geðveikan stað með þvílíkt skemmtilegri tónlist þar sem við dönsuðum alla nóttina...
Nóttin endaði á Subway og síðan heima á hóteli.. Daginn eftir vöknuðum við við það að síminn á hótelherberginu var að hringja, Úpps! Sváfum yfir okkur það þurfti sko að reka okkur út haha! Eina við það að ég var komin með eitthvað helvítis drasl í kringum vinstra augað og ég varð að láta kíkja á þetta því ég gat varla opna augað þegar ég vaknaði. JÁ VIGGA HEPPNA eða frekar óheppna hehe... þannig ég sendi Magga bara í bæinn að skoða sig um á meðan ég þurfti að fara og finna blessuðu bráðamóttökuna í Hamburg! Hehe eftir langa lestar og strætóferð fann ég spítalann.... En NEI ég fékk enga aðstoða af því ég var ekki með 100 evrur í peningum sem er 9000 kalll. Þannig ég fór bara aftur út með enga hjálp nema einhvern helvítis kælipoka sem ég átti að setja á bólguna.. Hahaha þannig ég labbaði restina af deginum með kælipokann á blessaða auganu, hitti Magga á lestarstöðinni og við fengum okkur MC steakhouse AFTUR, og fórum svo aftur heim
Fyrsti í lestina, svo í skipið og svo aftur í lestina... Aaaaaðeins meira ferðalag en við bjuggumst við.. Ég svaf næstum allan tímann en greyið Maggi náði ekki að sofa neitt
Um kvöldið, eða nóttina fór ég á bráðamóttökuna hérna í Köben og lét kíkja á augað.. Fékk nú ekki mikla hjálp, en þeir halda að þetta sé ofnæmi eða moskítóbit og sögðu mér bara að taka ofnæmislyfin mín, vona að þeir hafi rétt fyrir sér!!!
Hvað er samt málið með það að ég endi eiginlega alltaf á bráðamóttökum þegar ég fer til útlanda?????
Svaf til 5 í dag, fór með Eyþóri út að borða og á kaffihús sem er bara næs
Fer svo til Svíþjóðar á miðvikudaginn að heimsækja Tatti og verð þar þangað til á Sunnudaginn sem er alveg frábært.. hlakka þvílíkt til að sjá hana og Mikki 
Svo kemur mamma 7.-10. ágúst sem verður frábært, við ætlum til Malmö á hótel í eina nótt og slappa bara af. 
Já og svo kem ég heim 15. ágúst kl 9:00 um morguninn, bara svo þú vitir ef þú vilt standa tilbúin/n á flugvellinum til að knúsa mig!!!!!!!!!!!!!!!!
Viggitz kveður í bili!
VERIÐ GÓÐ VIÐ HVERT ANNAÐ OG MUNIÐ AÐ LÍFIÐ ER YNDISLEGT
Vigdis Bjork Sveinsdottir
17. júlí 2007 klukkan 11:49
Já það er komin tími á blogg... Enda mikið búið að gerast síðan síðast
.
Fyrir Hróarskeldu.
Hulda kom á föstudegi og við ákváðum að taka því bara rólega en fórum síðan út á laugardeginum. Það var geggjað gaman, enda vorum við búnar að gera okkur mega sætar fyrir kvöldið
. Við fórum líka til Malmö og versluðum alveg helling! hehe það var nebla rigning þann daginn og við gátum ekki annað en röllt á milli HM búða og jú líka diesel og levis! Fórum síðan út að borða í mega góðri kirkjustemningu!
Svo var það ferðin þegar við ætluðum í bíóið.. komum kl að verða 11 og ætluðum á 11 sýningu en nei þá lokar bíóið kl hálf 10! What? Æi þetta er bara Köben.. þannig við ákváðum að fá okkur einn bjór, lentum inn á einhverjum stað sem við héldum fyrst að væri stippbúlla en reyndist svo vera einhver mega dansstaður! Það eina við það var að allir voru svona 16 ára þarna inni hehe og við fenum sérstakt armband sem sagði að við værum orðnar 18!!! haha þetta var nottla bara djók.. en engu að síður mega stuð eftir mikla drykkju. 
Ferðin hennar Huldu einkenndist mikið af þessari stemningu: Vigga: eigum við að kíkja út í kvöld?
Hulda: já allt í lagi að kíkja aðeins.
Vigga: já einmitt bara einn bjór!
Hulda (eftir einn bjór): Eigum við að fá okkur annan?
Vigga: Já maður!
Hulda: Nenni samt ekki að vera til 5.
Vigga kl5: Einn dans í viðbót 
Já, ég á víst dálítið erfitt með að stoppa. Eins gott að Hulda var þarna! hehe
En við gerðum nú alveg helling annað en að vera fullar
, fórum tvisvar í bíó og sáum Die hard og oceans 13.. Leigðum okkur hjól einn daginn og hjóluðum túristahringinn góða og fórum nottla í búðir hehe.. Kíktum í Fields, Fiskitorvið og strikið alveg nokkrum sinnum
.
Svo kom Hróarskelda.
Jæja þá byrjar ballið! Nei ég meina bleytan eða flóðið
Við vorum nú búnar að fara á sunnudeginum áður og tjalda hehe í þynnkunni! Fórum 6 um morguninn beint af djamminu, peningalausar og ekki með neitt! Já þá meina ég ekki neitt ekki einu sinni tjaldið sem við vorum að fara að tjalda hahaha! Bara brandari sko.. Fórum í röðina góðu, en þetta er án efa hægasta röð sem ég hef farið í, reyndar var þetta engin röð bara mörg hundruð manns að reyna að komast í gegnum 1 metra breitt hlið
Fyrst var allt í lagi, svo var dáldið þröngt og svo meira þröngt og síðan svo þröngt að þú þurftir ekki að hafa fyrir því að standa var bara þarna kramin á milli! Í 2 klukkutíma.. jeiii, held að Hulda sé sammála um að þetta hafi verið mega stuð
eða kannski bara ekki!! hehe.. Loksins þegar við komumst í gegn hófst leitin af hraðbanka og tjaldasölu.. þegar þangað var komið var ekki búið að tengja hraðbankana og posinn í tjaldasölunni var bilaður!!!!!!!! Já þvílík heppni, svo fórum við í tjaldbúðirnar þar sem við ætluðum að vera og hittum Daniel sem reyndist síðan vera besti vinur okkar þennan dag.. þetta var vinur Louise sem ég hef aldrei séð áður hehe en samt lánaði hann okkur pening til að við gætum keypt tjald og komist aftur heim með lestinni
Þannig að við tjölduðum og fórum síðan BEINT heim, nottla ekki búnar að sofa neitt!
Síðan mætum við aftur seinnipartinn á fimmtudeginum þegar hátiðin er að byrja. Klárar í slaginn í nýju stígvélunum
. Finnum síðan tjaldið... en bíddu! Augnablik!!!! Það er ofan í drullusvaðinu! Úpps, kíkjum inn í það og þá er risa pollur inn í tjaldinu... Jeiii. Hulda ákveður að fara að sækja auka himinn til að setja ofan á tjaldið á meðan ég reyni að festa tjaldið betur! Það var nebla bara fest með þremur hælum! Eins og þið vitið þá elska ég að kafa með hendurnar ofan í drullu! Eða þannig
Svo kemur Hulda til baka með eitt stykki teppi en engann himinn.. sem kom sér reyndar ágætlega.. Hulda finnur bjórglös og við byrjum að ausu út úr tjaldinu með þeim. Gleymum því ekki að það var Grenjandi rigning á meðam á þessu stóð! En þetta reddasist nú.. svo vorum við þarna um kvöldið á tónleikunum og tókum síðan strætó heim um kvöldið
´
Fórum aftur á föstudeginum og gistum þá um nóttina... Sem var frekar grós!! En Hulda datt rækilega í það á meðan ég ákvað að fara snemma að sofa.. Fórum síðan aftur fram og til baka á laugardeginum.. Já þetta var voða mikið fram og til baka hehe og alltaf vorum við í strætóröðinni sem tók nokkra klukkutíma! Shit hvað við vorum að verða þreyttar á þessu! En mér fannst laugardagskvöldið algjör snilld enda kóngur technosins að spila!! TIESTO
Vá það var sko geggjað að sjá hann.. Enda þurfti ég líka að vera alveg fremst þegar hann kom á sviðið.. Vantaði bara Guðrúnu mína svo mikið akkúrat þarna
En já það var heví gaman að sjá hann sko! Tók öll aðallögin enda spilaði hann í fjóra tíma. En við kíktum líka aðeins á Red hot chili peppers. Síðan fórum við heim um nóttina og ákváðum að taka allt dótið úr tjaldinu ef við skildum ekki nenna að fara aftur á sunnudeginum. Yfirgáfum tjaldið okkar sem var búið að teikna tippi á og örugglega pissa á 100 sinnum.
Þetta var mjög góða hugmynd þar sem við nenntum engann veginn að fara aftur á sunnudeginum.. ákváðum frekar að hafa það kósý og kíkja aðeins út og fá okkur EINN bjór hehe 
Takk æðislega fyrir komuna Hulda mín! Hefðum ekki getað skemmt okkur betur 
Hitti líka Báru og Heiðu á Hróanum.. Æðislega gaman að sjá ykkur stelpur! Þið fáið mega hrós fyrir að hafa verið í tjaldinu allan tímann! 
Later folks!
Viggitz
Vigdis Bjork Sveinsdottir
21. júní 2007 klukkan 15:16
Vigdis Bjork Sveinsdottir
18. júní 2007 klukkan 01:27
Vigdis Bjork Sveinsdottir
18. júní 2007 klukkan 00:21
Tveim dögum eftir að Guðrún fór hófst ferðin mikla til Ítlalíu... eins og ég var búin að nefna að þá tók ég lestina þangað með nokkrum stoppum. Var nú örlítið smeik þegar ég labbaði hérna út heima með troðfullann bakpokann af dóti, og vissi í raun ekkert hvað ég var að fara út í
En svo kom ég upp á lestarstöð.. fann lestina og klefann sem ég átti að vera í. Enginn var nú í klefanum þegar ég kom þannig að ég vonaði bara að ég mundi vera ein þar. En svo rétt áður en lestin fór þá kom kona sem átti sem sagt að vera með mér í þessum 3 fm klefa! Og áður en við fórum að sofa þá var konan að spjalla eitthvað og mér fannst hún nú alveg fín sko þangað til hún fór að tala um blómin sem við sáum út um gluggann og hvernig mar gæti búið til ópíum úr þeim hehe!
En svo þurfti ég að vakna kl 5 um nóttina til að skipta um lest í Dusseldorf í Þýskalandi. Kom út, og vissi nottla ekki hvort ég átti að fara til hægri eða vinstri, en það reddaðist nú og ég labbaði um bæinn í klukkutíma og sá nokkrar byggingar og skrítið fólk með blessaðann bakpokann og fór síðan aftur í næstu lest til Luxemburgar. Sá margt fallegt á leiðinni en þurfti að sitja hjá gömlum hjónum og kallinn talaði ekki um annað en einhverja grein sem hann las um íslendinga og hvað við værum drikkfelld! Helvítis þjóðverjar!!! Kom til Luxemburgar um hádegi, fann hótelið mitt og henti draslinu mínu þar inn. Svo eyddi ég deginum bara þar, verslaði smá og skoðaði borgina, mæli sko alveg með þessari borg, mjög fallegt þarna! Síðan lagði ég mig aðeins og fór svo aftur út um kvöldið og fékk mér að borða
Á því augnabliki fannst mér pínku leiðinlegt að vera ein en samt allt í lagi. Svo langaði mig að kíkja aðeins í bæinn! Þannig að Viggan ákveður að taka strætó þangað... strætóinn fór reyndar út í rassgat og út í sveit! Þá var mér farið að finnast helvíti leiðinlegt að vera ein! Hehe sat ein í strætó í örugglega hálftíma eða meira. endaði nú samt í bænum og fékk mér einn öl á einhverjum bar sem reyndist síðan vera strippbúlla
En jæja, fór svo bara heim. Það eina við það að ég var búin að vera drulluveik og að drepast úr ofnæmi síðustu daga þannig að augun í mér voru ógeðslega rauð og ég leit ekkert sérstaklega vel út hehe þrátt fyrir að vera í nýja kjólnum mínum sem ég keypti um daginn
( Þið fáið sko kast þegar þið sjáið hann!) Allavega.. ákvað að vakna snemma daginn eftir og kíkja á doctorinn. Var orðin skuggalega veik þarna, þannig að ég vakna kl 8 og fer á bráðamóttökuna, endaði með því að allur seinni dagurinn minn endaði þar! en ég fékk líka lyf sem var gott... svo ég fékk mér bara ís áður en ég fór aftur í lestina.
Jæja svo legg ég aftur af stað með lestinni til Basel í Sviss ( leiðréttist hér með að Basel er í Sviss en ekki Austurríki) Það voru næstum 4 tímar og kom ég þangað kl 7 um kvöldið. Henti pokanum í gleymslu og byrjaði að labba eitthvert út í buskann... fann nú miðbæinn á endanum og fór þar á útitónleika
Vá ég var svooo mikill túristi þarna hehe.. skoðaði einhverjar byggingar líka.. En þetta er sko gömul höfðingjaborg. Mér leið reyndar eins og í seinni heimstyrjöldinni þegar ég var að fara í gegn á lestarstöðinni, því þetta er á landamærunum og mar þurfti að standa í einhverri sérstakri röð til að sýna vegabréf og þannig. Svo eftir útitónleikana fór ég á MC steakhouse. Eftir það röllti ég aðeins en þá gerðist soldið! Allt í einu byrjaði að rigna og ég nottla í hvítu pilsi og á hlýrabolnum. Við erum ekki að tala um nokkra dropa NEI. Við erum að tala um flóð og haglél!!! Ég hef sko aldrei lennt í öðru eins
hlóp undir þak hjá einni búð og ákvað að bíða þar þangað til þessu mundi linna, en þetta varð bara meira og meira og bílarnir gátu ekki keyrt hehe sáu sko ekkert út, þrátt fyrir rúðuþurkur á 700 km hraða!. eftir 20 mín gat ég ekki beðið lengur þannig ég þurfti að hlaupa á lestarstöðina. Fann samt metro á leiðinni sem ég hoppaði upp í og fór með mig þangað. Göturnar voru sko tómar og fólk vogaði sér ekki undir haglélið sem var svona 5 millimetrar á breidd! Viggan var blaut hehe sko nærfötin voru rennandi, þannig að ég þurfti að strippa á klósettinu á lestarstöðinni ojjjjjjjjjbarrasta! Fór svo í næturlestina
Var sko fegin að koma þangað og getað bara farið að sofa í þessum 6 manna, 5fm klefa. lagðist í 3ja hæði kojuna, efst öðru megin. En það voru gömul hjón neðst.. ég svaf í hálftíma en þá byrjaði klefinn að fyllast.. BARA STRÁKAR...! Og ekki góð loftræsting.. og ég var búin að hengja öll blautu fötinn út um allt hehe.. svo kom svitafýla og so on!!! Ég gat sko ekki andað!!!!!!! Shit ojjj! Var að drepast þarna og þurfti að sofa í fötunum í þokkabót.. Þannig ég fór á endanum út úr klefanum og stóð á ganginum í klukkutíma, vá hvað þetta leið hægt.. en ég lifði nóttina af VAKANDI!
Kom til Flórens á Ítalíu kl 7 um morguninn og tók sko beint leigubíl á hótelið til Pabba
Þar fékk ég sturtu og mat.. vá þvílíkur LÚXUS!! Pabbi var með konunni sinni og börnunum hennar.. ekkert slor þar á bæ bara svona svíta með 2 risa baðherberjum og eitthvað hehe! Eyddum hálfum degi í Flórens, skoðuðum tippastittur af Davíð og fórum smá í búðir. Síðan keyrðum við í húsið og hittum fjölskylduna eftir smá reis á autobananum
Vá frekar gott að keyra bara um í geggjuðum benz með mega loftkælingu! Eftir þetta tók við afslöppun í húsinu.. og þetta var nú reyndar ekkert bara hús hehe... Rúm fyrir 26 manns, baðherbergi með næstum öllum herbergum. 2 Risa stór eldhús og 2 risa stofur. Tölum nú ekki um garðinn.. Sundlaug, fullt af sólbekkjum, fótboltavöllur og leikaðstaða... svo var nottla bílaskýlifyrir hvern bíl! Hef nú ekki verið með föðurfjölskyldunni minni mjög lengi þannig að þetta var bara heví gaman.. öllum hent í laugina daglega og brauð með súkkulaði í hvern morgunmat
Fór með Patta frænda og kærustunni hans í bæinn sem var þarna rétt hjá í einn dag annars var ég bara að chilla í húsinu.
Síðan kom The frænka, sem er systir afa Ítalska.. hún er svona 60 ára og býr á Sikiley. Alveg típísk ítölsk kona sko, grét sko heilli sundlaug þegar hún kom og sá okkur og annað eins þegar hún fór aftur hehe.. Alveg frábær sko, hún eldaði eitt kvöldið fyrir okkur öll svona ítalskt pasta, geggjað gott sko.. Og það mátti sko enginn skilja neitt eftir á disknum bara svo hún yrði ekki móðguð haha! En hún talaði nottla ekkert nema ítölsku þannig að ég gat ekkert talað við hana.. Fór samt með pabba þegar hann keyrði hana til Rómar í bátinn
Fannst það alveg gaman sko... elska að keyra svona hratt í útlöndum
200 næstum alla leiðina! En þetta var alveg frábær ferð.. 30 stiga hiti allan tímann og bara næs... En ég var 5 daga í húsinu og fór síðan heim MEÐ FLUGI frá FLórens Takk fyrir... Ekki fleiri lestar í bili 
En ef þú kæri lesandi hefur nennt að lesa þetta allt! Þá færð þú klapp á öxlina! 
Vigga ferðalangi kveður!
Vigdis Bjork Sveinsdottir
17. júní 2007 klukkan 23:37
Já þetta var sko ekkert smá gaman... veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja!
Hún kom um morguninn og var með mér fyrsta daginn í vinnunni, svo á föstudeginum var Gusgus djammið, vá þetta var svooo gaman! Drukkum aðeins heima hjá mér eftir frekar skrautlega Bilkaferð hehe og löbbuðum síðan á Vega :) Á Vega hittum við fullt af fólki, bæði sem ég er að vinna með og svo auðvitað Eysa og Sigga.. Svo kom Solla og Guðný, og það var nottla bara geggjað að sjá Sollu
Langt síðan við vinkonurnar höfum verið saman... Þannið að tónleikarnir og allt heppnaðist mjög vel.. Reyndar svolítið skrautlegt en samt heví stuð! Fórum nokkur síðan aðeins heim til mín, drukkum og kíktum síðan aðeins út aftur... á einn stað... hehe en já enduðum heima hjá Eyþóri og sváfum þar, fórum síðan heim og þá tók þvílíkur laugardagur við.. haha! Lágum bara upp í rúmi og spjölluðum allan daginn, það var sko ekkert smá næs! Fórum svo um kvöldið á Mc steakhouse og vorum það í 40 mín að bíða eftir einum ostborgara hahaha! Frekar pirrandi svo á leiðinni heim reyndi einn gaur að drepa mig úr hræðslu, Já það var laugardagurinn. Svo á Sunnudeginum fórum við aðeins að versla og svo í tívolíð með Sollu og Andra
Ég var nú bara í pössunarhlutverkinu, og fullkomlega sátt við það.. er nebla ekkert mikið fyrir svona tæki! Svo fórum við Guðrún á smá djamm hehe, fengum okkur öl á laundromat og síðan enduðum við á sunnudagsbarnum.. hehe eftir að hafa farið í hjólaferð! Okkur leist nú ekkert á það þegar gæinn sem hjólaði með okkur vildi fá bjór en við komumst á leiðarenda
Á sunnudagsbarnum eða jónubarnum, var bara fínt.. dönsuðum, drukkum smá og fórum síðan heim. Svo á mánudeginum fór Guðrún, Solla, Andri og Þórey heim.. Og ég fór að vinna. Þetta var alveg geggjuð helgi! Hefði sko ekki viljað hafa hana neitt öðruvísi 
Takk Guðrún fyrir þessa helgi! 
Vigdis Bjork Sveinsdottir
30. maí 2007 klukkan 14:43
Vildi bara segja ykkur að hún Guðrún Ósk Stefánsdóttir er að lenda á Kastrup eftir 13 klukkutíma :D:D:D:D
Og hún er að fara upp á Esjuna í kvöld! :S Lýst ekkert á það sko, ég vona að hún fari ekki að slasa sig!!! Hún var nú reyndar með meiri áhyggjur af því að brjóta nögl hehe :)
En best að fara að þrífa og taka til áður en gellan kemur :D
Viggan kveður með bros á vör ;);););)
Vigdis Bjork Sveinsdottir
23. maí 2007 klukkan 20:11
Vigdis Bjork Sveinsdottir